föstudagur, 29. júní 2007

Flatkökur Ástu tengdamóður minnar

1 pakki haframjöl (475 gramma)

2 kíló hveiti

1 lófi fínt salt (Ásta hafði mjög smáa hendi)

1 tekseið lyftiduft

1 matskeið sykur

1 ketill sjóðandi vatn (1.7 lítrar)

Hnoðið deigið eins heitt og mögulegt er, notið þykka gúmmíhanska við verkið. Passa að hnoða deigið eins lítið og hægt er.

Ásta og Árni bökuðu margar kökur í einu ( 8-12 stk) með því að setja þær á járnplötu og baka með gasi. Í mörg ár bökuðu þau fyrir Kaupfélag Skaftfellinga í Vík

Engin ummæli: