Hér er uppskrift að dásamlegri Snickers heilsuköku sem er æðislegur desert.
Botn:
200 g döðlur
100 g möndlur
100 g kókosmjöl
1/2 tsk. vanilluduft eða dropar
Leggja þarf döðlurnar í bleyti í 10 mínútur og setja allt saman í matvinnsluvél. Síðan sett í kökuform og þrýst vel niður í formið. Mjög gott að setja bökunarpappír í formið áður.
Sett í frysti í 10 – 15 mínútur.
Eftir þetta er gróft hnetusmjör sett vel yfir. Formið er aftur sett í frysti í 10 – 15 mínútur.
Súkkulaðibráð:
1 dl kókosolía
1 dl hreint kakó
1/2 dl agave sýróp
Súkklaðibráðinni hellt yfir og kakan geymd í frysti.
Eintóm hollusta og algjört lostæti en rosalega gott að hafa smá óhollustu með eins og þeyttan rjóma.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli