Ellý Ármanns setti þessa köku á sinn vef.
Vinkona mín Sigrún Kaya Eyfjörð setti sáraeinfalda LKL uppskrift af franskri súkkulaðiköku á netið. Ég ákvað að gefa henni sjéns - það er að segja kökunni og viti menn hún er sjúklega gómsæt. Hreint út sagt dásamleg.
Kakan er blaut í miðið. Ég setti kókosflögur ofan á mína sneið.
Franska súkkulaðikakan hennar Sigrúnar fær 10 stig af 10 mögulegum. Ef þú ert á sykurlausu fæði skaltu ekki hugsa þig tvisvar um. Skelltu í eina blauta sem kitlar bragðlaukana svo um munar. Svo skemmir ekki fyrir að það er mjög auðvelt að baka hana og tekur enga stund.
Sex ára dóttir mín og yndisleg frænka sem gisti hjá okkur um helgina sáu alfarið um baksturinn. Hér eru þær að brjóta 85% súkkulaðið niður.
Franska Sigrúnarkaka
1 1/4 dl sterkt kaffi (uppáhellt - ég gerði tvöfaldan espresso)
200 gr Sugarless sugar (frá NOW)
250 gr 85% súkkulaði - Rapunzel dökkt súkkulaði (85% kakó)
225 gr smjör
250 gr 85% súkkulaði - Rapunzel dökkt súkkulaði (85% kakó)
225 gr smjör
4 egg
Aðferð
1. Hella upp á kaffi og setja það og sætuna saman í pott. Hræra saman þar til útkoman verður sýróp.
2. Þá setti ég súkkulaðið út í og smjörið. Hræri allt saman og læt bráðna við vægan hita á hellu.
Aðferð
1. Hella upp á kaffi og setja það og sætuna saman í pott. Hræra saman þar til útkoman verður sýróp.
2. Þá setti ég súkkulaðið út í og smjörið. Hræri allt saman og læt bráðna við vægan hita á hellu.
3. Kæli blönduna aðeins - þar til hún verður volg.
4. Svo hræri ég eggjunum saman við - Sigrún segir eitt egg í senn en ég setti tvö í senn.
5. Skellti blöndunni svo í form sem er þakið smjörpappír.
6. Ofn stilltur á 170°C og kakan bökuð í 60 mínútur.
7. Sigrún mælir með að bera hana fram með rjóma en ég gerði það ekki.
8. Ég setti kókosflögur ofan á mína sneið. Gott að leyfa fólki að ráða. Setja kókosflögur í sér skál með.
9. Þessi franska súkkulaðikaka er FULLKOMIN.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli