SKÓBÓT
7 þeyttar eggjahvítur
7 dl púðursykur
Eggjahvítur og púðursykur þeytt mjög vel saman þar til stíft í skálinni. Deigið sett í tvö lausbotna form (smurð vel) og bakað við 90-100°C í 1-1 1/2 klst. Látið kólna alveg áður en botnarnir eru teknir varlega úr formunum.
Þeytið 1/2 ltr rjóma og setjið á milli botnanna. Ef súkkulaði eða einhverju öðru er bætt saman við rjómann, þá er það gert varlega með sleif eftir að rjóminn er þeytttur. Rjóminn er settur á tertuna daginn áður en hún er borin fram.
Athugið að þessi uppskrift miðast við lausbotna form sem er 25 cm. Ekkert mál er að stækka og minnka uppskriftina eftir stærð formanna, þ.e. miðað er við 1 eggjahvítu á móti 1 dl púðursykri.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli