þriðjudagur, 23. júní 2015

Rabbabarabaka

án hveitis og sykurs
400-500 g rabbabari, eða eins og passar í mótið sem þið ætlið að nota
100 g smjör
1 bolli möndlumjöl
1 tsk lyftiduft
1 bolli sukrin gold og aðeins meira til að dreifa yfir rabbabaran
3 egg
1 tsk vanilludropar (prófið að skipta út fyrir möndludropa, þá bragðast bakan eins og marsipan!)
Nokkrir dropar karamellu eða vanillustevía
Setijið rabbabaran í eldfast form og dreifið sukrin gold yfir efti smekk, ég hugsa ég hafi sett svona 2-3 msk. Bræðið smjör og sukrin saman í potti. Hrærið möndlumjöli, vanillu og lyftidufti saman við. Hrærið eggjunum saman við. Passið að blandan sé ekki of heit svo eggin hlaupi ekki í þegar þið setjið þau í pottinn. Hrærið þar til allt er vel blandað og hellið svo yfir rabbabaran. Bakið við 180°C í 30-40 mínútur. Ég vil að bakan sé blaut í miðjunni þannig hún leki út, mér finnst það miklu betra. En það er líka hægt að baka hana lengur þannig hún standi í raun sjálf þegar henni er skóflað úr forminu. Þið gerið þetta eftir ykkar smekk."
Uppskrift og mynd birt á blogginu Kruðerí og Kjánabangsar.
Þar er einnig að finna sívinsæla óbreytta rabbabarapæ ef sykurleysið heillar ekki.

Engin ummæli: