fimmtudagur, 30. desember 2021

Kalkúnafylling að hætti Steina

Allt fer þetta eftir því hversu stór kalkúninn er en hér kemur þetta svona ca eftir minni: Best er að græja fyllinguna í kalkúninn daginn áður en á að steikja hann. Hakk að eigin vali eftir stærð kalkúns. Steikt á pönnu og látið kólna. Niðurskorið bacon steikt á pönnu og látið kólna. Sveppir skornir í smá bita ef fólk vill hafa sveppi og steiktir í beikonfeitinni og látinn kólna. Laukur skorinn í smá bita. Brasaður á sömu pönnu og látinn kólna. Sellerístönglar ca 3-4 skornir niður. Kalkúnakrydd eða það krydd sem fólk vill. Ristað brauð í teningum. 4-8 sneiðar eftir kalkúnsins. Rjómi eftir þörfum. Öllu skellt saman í dall og hrært með rjóma þar til þetta er eins og þykkt deig. Kryddað eftir smekk hvers og eins. Troðið inn í óæðri endann og líka að framan en ekki of mikið því fyllingin getur þá puðrast út með saumunum

Engin ummæli: