þriðjudagur, 19. júlí 2022

Mexíkósk kjúklingasúpa

Fyrir ca sex manns. 4 kjúklingabringur. 3 paprikur (rauð, gul og græn). 2 gulrætur. 1/2 blaðlaukur. 2 hvítlauksgeirar. 1 laukur. 1/2 rautt chili, fræhreinsað og skorið smátt. 5 msk góð olía. 2 ds saxaðir tómatar. kjúklingakraftur. 2-3 msk karrý. 1,5 l vatn. 1 /4 l rjómi. 1 ds tómatpúrra. 200 g Philadelphia ostur með sweet chili. salt og pipar. Hitið olíu á pönnu við vægan hita, saxið grænmetið smátt og steikið stutta stund á pönnunni. Setjið grænmetið í stóran pott, bætið vatninu, tómatpúrru, karríi, kjúklingakrafti og tómötum saman við og látið malla á meðan þið steikið kjúklinginn. Skerið kjúklinginn í litla bita, steikið í olíu á pönnu í smá stund. Kryddið með kjúklingakryddi, salti og pipar. Bætið kjúklingnum við súpuna og látið sjóða við vægan hita í 10-15 mín. Að lokum fer rjóminn og rjómaosturinn saman við. Berið súpuna fram með sýrðum rjóma, rifnum osti og nachos-flögum, sem hver og einn bætir á sinn disk eftir smekk.

Engin ummæli: