þriðjudagur, 19. júlí 2022

Hreindýrapaté

500 gr hreindýralifur, skorin í bita, um það bil 2 cm. 500 gr kjúklingalifur, skorin í bita. 3 laukar, smátt saxaðir. 4-6 hvítlauksrif, marin undir hnífsblaði og söxuð smátt. 4-5 msk. ferskt tímian (eða 4 tsk. þurrkað). 4-5 msk. ferskt rósmarín (eða 4 tsk. þurrkað). 3-4 tsk. salt. 3 tsk. pipar nýmalaður. 1 kg smjör – kalt, skorið í bita. Hitið ofninn í 150°C. Setjið allt nema smjörið í eldfat mót eða ofnskúffu. Breiðið álpappír vel yfir mótið. Bakið í 30 – 40 mínútur eða þar til lifrin er elduð í gegn. Hellið úr ofnskúffunni í matvinnsluvél og maukið vel ásamt smjörinu. Smakkið til með salti og pipar. Setjið í falleg mót eða krukkur. Patéð má frysta og geymist þannig í allt að 6-8 mánuði. Berið fram með brauði, t.d. snittubrauði sem er ristað, berjasultu eða rauðlaukssultu og salati. Mjög góður forréttur eða smáréttur.

Engin ummæli: