miðvikudagur, 27. mars 2024
Rice krispies súkkulaðiturn með þristum
240 g síróp.
480 g hjúpsúkkulaði.
150 g smjör.
280 g Rice Krispies.
1 pk lakkrísþristar.
Aðferð:
Skerið þristana í smáa bita.
Skerið súkkulaðihjúpinn niður í smá bita.
Hitið upp síróp, súkkulaði, smjör og þrista þar til það bráðnar.
Setjið Rice Krispies í skál og hellið súkkulaðiblöndunni yfir.
Leyfið blöndunni að kólna aðeins áður en unnið er með hana.
Gott er að hafa kransakökuhringi til að móta í.
Einnig er gott að vera í hönskum við þetta því deigið getur verið heitt og loðir minna við þig ef í hönskum.
Eftir að búið er að móta hringina skaltu búa til litla munnbita úr restinni.
Setjið í kæli eða frysti í smá stund svo hringirnir full harðni áður þú staflar þeim upp.
Fallegt að skreyta með einhverju sem tengist veislunni eða til dæmis þristakúlum eða litríku konfekti.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli