fimmtudagur, 26. júní 2014

LKL Rabbabarapæ

Uppskriftin frekar lítil.
500 gr skorin rabbabari frekar smátt settur í eldfast form
ca 2 msk af xylitol sætu stráð yfir

 Deig yfir
150 g mjúkt smjör
100 gr möndlumjöl
50 gr kókoshveiti
100 gr xylitol sæta
1 tsk vínsteinslyftiduft
1 egg
1 tsk vanilludroparöllu
Hrært saman í hrærivél og síðan sett yfir rabbabarann (frekar þykkt best að nota fingurnar)
Bakað í ofni við 180°í ca 25 mín og borið framm með þeyttum rjóma

LKL frönsk súkkulaðikaka-Gunnar már


Frönsk súkkulaðikaka


kaka
Ég rakst á þetta dásamlega  Amadei 75% súkkulaði í Frú Laugu og stóðst ekki mátið. Svo var ég eitthvað að spara þetta og tímdi ekki að nota í hvað sem er, þannig að ég bara hætti að pæla í því og gerði svona franska súkkulaðiköku. Uppskriftina fékk ég úr þessari bók Eva vinkona gaf mér í jólagjöf – takk Eva
Þessa uppskrift setti ég í 24 cm silicon og passaði það ágætlega, þar sem hún er ansi öflug og ágætt að fá bara þunna sneið. Dásamleg með rjómaslettu og jafnvel jarðarberjum á góðum degi. Ofan á er Sukrin melis í skraut.
  • 100g smjör
  • 100g dökkt súkkulaði
  • 2 egg
  • 1 dl Sukrin melis (eða annað sætuefni)
  • 1 msk kakó
  • 1/2 tsk vanilluduft
  • 125 g mascarpone ostur (ég blandaði þetta 50/50 við rjómaost)
  1. Hitið ofninn í 175°C
  2. Bræðið saman smjör og súkkulaði
  3. Þeytið eggjarauður og sukrin vel saman þangað til létt og loftkennt
  4. Bætið mascarpone ostinum útí súkkulaðiblönduna
  5. Blandið þessum tveimur blöndum saman
  6. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið varlega saman við í lokin.
  7. Hellið í form og bakið í 15-20 mín
    Uppskriftina er að finna á blogginu þeirra Kristínar og Guðríðar – www.tviburagourmet.wordpress.com – smelltu hér

Frönsk súkkulaðikaka - sykurlaus

Ellý Ármanns setti þessa köku á sinn vef.
Vinkona mín Sigrún Kaya Eyfjörð setti sáraeinfalda LKL uppskrift af franskri súkkulaðiköku á netið. Ég ákvað að gefa henni sjéns - það er að segja kökunni og viti menn hún er sjúklega gómsæt. Hreint út sagt dásamleg.

Kakan er blaut í miðið. Ég setti kókosflögur ofan á mína sneið.  

Franska súkkulaðikakan hennar Sigrúnar fær 10 stig af 10 mögulegum. Ef þú ert á sykurlausu fæði skaltu ekki hugsa þig tvisvar um. Skelltu í eina blauta sem kitlar bragðlaukana svo um munar. Svo skemmir ekki fyrir að það er mjög auðvelt að baka hana og tekur enga stund.

Sex ára dóttir mín og yndisleg frænka sem gisti hjá okkur um helgina sáu alfarið um baksturinn. Hér eru þær að brjóta 85% súkkulaðið niður. 


Franska Sigrúnarkaka

1 1/4 dl sterkt kaffi (uppáhellt  - ég gerði tvöfaldan espresso) 
200 gr Sugarless sugar (frá NOW)
250 gr 85% súkkulaði  - Rapunzel dökkt súkkulaði (85% kakó)
225 gr smjör 
4 egg

Aðferð
1. Hella upp á kaffi og setja það og sætuna saman í pott. Hræra saman þar til útkoman verður sýróp.
2. Þá setti ég súkkulaðið út í og smjörið. Hræri allt saman og læt bráðna við vægan hita á hellu.
3. Kæli blönduna aðeins - þar til hún verður volg.
4. Svo hræri ég eggjunum saman við - Sigrún segir eitt egg í senn en ég setti tvö í senn.
5. Skellti blöndunni svo í form sem er þakið smjörpappír.
6. Ofn stilltur á 170°C og kakan bökuð í 60 mínútur.
7. Sigrún mælir með að bera hana fram með rjóma en ég gerði það ekki. 
8. Ég setti kókosflögur ofan á mína sneið. Gott að leyfa fólki að ráða. Setja kókosflögur í sér skál með.
9. Þessi franska súkkulaðikaka er FULLKOMIN.

Chia brauð

Þetta brauð kom á óvart og minnir dálítið á rúgbrauð eða svona lyftiduftsbrauð sem amma er vön að gera. Ég kalla það stundum jólabrauðið hennar ömmu Erlu því hún bakar það oft í kringum jólin og er sérlega gott með heitu kakói og rjóma. Allavega þetta minnti aðeins á áferðina og sæta bragðið sem kemur til vegna kókoshveitisins. Það er þó nokkuð létt í kolvetnum eða um 9 netcarb í öllum brauðhleifnum skv mínum útreikningum. Mæli með að þið prófið.

Chia brauð

80 ml kókosolía, bráðin
3 egg
1 dl eggjahvíta
1 tsk eplaedik
2 msk chia seed mjöl
50 g kókoshveiti
20 g möndlumjöl
1 tsk matarsódi
1/2 tsk salt

Aðferð:
Hitið ofninn í 170°C með blæstri
Blandið þurru í eina skál og blautefnum í aðra, pískið létt saman.
Blandið svo saman efnunum og hrærið létt, látið standa í 5-10 mín.
Hellið blöndunni í form (ekki of stórt samt) mætti gera uppskrift tvöfalda ef hún á að fylla í stórt brauðform.
Bakið í 40 mín.
Það mætti t.d. strá graskersfræjum eða sesam áður en þetta er sett í ofninn.
Látið brauðið kólna vel áður en það er skorið.