þriðjudagur, 12. ágúst 2025

þriðjudagur, 14. maí 2024

Letigjabrauð

3 dl hveiti. 3 dl haframjöl. 1 dl sykur. 1 tsk kanill. 1 tsk kakó. 1 tsk natron. 1/2 tsk negull. 3 dl mjólk. Hrært saman, látið standa svo haframjölið leysist upp. Bakað í 45 mínútur við 175 gráður Celcius. Passar í eitt lítið form. Tvöföld uppskrift í hringform.

miðvikudagur, 27. mars 2024

Rice krispies súkkulaðiturn með þristum

240 g síróp. 480 g hjúpsúkkulaði. 150 g smjör. 280 g Rice Krispies. 1 pk lakkrísþristar. Aðferð: Skerið þristana í smáa bita. Skerið súkkulaðihjúpinn niður í smá bita. Hitið upp síróp, súkkulaði, smjör og þrista þar til það bráðnar. Setjið Rice Krispies í skál og hellið súkkulaðiblöndunni yfir. Leyfið blöndunni að kólna aðeins áður en unnið er með hana. Gott er að hafa kransakökuhringi til að móta í. Einnig er gott að vera í hönskum við þetta því deigið getur verið heitt og loðir minna við þig ef í hönskum. Eftir að búið er að móta hringina skaltu búa til litla munnbita úr restinni. Setjið í kæli eða frysti í smá stund svo hringirnir full harðni áður þú staflar þeim upp. Fallegt að skreyta með einhverju sem tengist veislunni eða til dæmis þristakúlum eða litríku konfekti.

Döðlugott

400 gr döðlur 250 gr smjör 120 gr púðusykur 3 bollar rice krispies 200 gr súkkulaði (ljóst eða dökkt, ég nota ljósan hjúp) Döðlur, smjör og púðusykur sett saman í pott og látið sjóða þar til döðlurnar eru orðnar eins og karamella Þá er blandan tekin af hellunni og rice krispies blandað við Blandan er látin í form með bökunarpappír og bráðið súkkulaði sett yfir og inn í ískáp Einstaklega fljótlegt og auðvelt að gera Kælt og skorið í litla bita :) Mæli með því að geyma konfektið inni í ískáp

fimmtudagur, 9. nóvember 2023

þriðjudagur, 19. júlí 2022

Mexíkósk kjúklingasúpa

Fyrir ca sex manns. 4 kjúklingabringur. 3 paprikur (rauð, gul og græn). 2 gulrætur. 1/2 blaðlaukur. 2 hvítlauksgeirar. 1 laukur. 1/2 rautt chili, fræhreinsað og skorið smátt. 5 msk góð olía. 2 ds saxaðir tómatar. kjúklingakraftur. 2-3 msk karrý. 1,5 l vatn. 1 /4 l rjómi. 1 ds tómatpúrra. 200 g Philadelphia ostur með sweet chili. salt og pipar. Hitið olíu á pönnu við vægan hita, saxið grænmetið smátt og steikið stutta stund á pönnunni. Setjið grænmetið í stóran pott, bætið vatninu, tómatpúrru, karríi, kjúklingakrafti og tómötum saman við og látið malla á meðan þið steikið kjúklinginn. Skerið kjúklinginn í litla bita, steikið í olíu á pönnu í smá stund. Kryddið með kjúklingakryddi, salti og pipar. Bætið kjúklingnum við súpuna og látið sjóða við vægan hita í 10-15 mín. Að lokum fer rjóminn og rjómaosturinn saman við. Berið súpuna fram með sýrðum rjóma, rifnum osti og nachos-flögum, sem hver og einn bætir á sinn disk eftir smekk.

Hreindýrapaté

500 gr hreindýralifur, skorin í bita, um það bil 2 cm. 500 gr kjúklingalifur, skorin í bita. 3 laukar, smátt saxaðir. 4-6 hvítlauksrif, marin undir hnífsblaði og söxuð smátt. 4-5 msk. ferskt tímian (eða 4 tsk. þurrkað). 4-5 msk. ferskt rósmarín (eða 4 tsk. þurrkað). 3-4 tsk. salt. 3 tsk. pipar nýmalaður. 1 kg smjör – kalt, skorið í bita. Hitið ofninn í 150°C. Setjið allt nema smjörið í eldfat mót eða ofnskúffu. Breiðið álpappír vel yfir mótið. Bakið í 30 – 40 mínútur eða þar til lifrin er elduð í gegn. Hellið úr ofnskúffunni í matvinnsluvél og maukið vel ásamt smjörinu. Smakkið til með salti og pipar. Setjið í falleg mót eða krukkur. Patéð má frysta og geymist þannig í allt að 6-8 mánuði. Berið fram með brauði, t.d. snittubrauði sem er ristað, berjasultu eða rauðlaukssultu og salati. Mjög góður forréttur eða smáréttur.